http://setjan.com/zi/

04.05.2007 11:18:21 / hannibal

Besti leikari Englands

Velti því fyrir mér hvor sé betri leikari, Drogba eða Ronaldo.  Finnst nú að Drogba hefði átt að taka þetta!

Kv. Hannibal leikstjóri


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 11:49:00 / hannibal

Landsbankadeildin 2007

-Leikir ÍA

14. maíÍA-FH 2-3

21. maí. HK - ÍA 1-0

 

24. maí. ÍA - Fram 2-2

28. maí. Fylkir - ÍA 2-2

10. jún. ÍA - KR 3-1

14. jún. Breiðablik - ÍA

19. jún. ÍA - Valur

26. jún. Víkingur. - ÍA

04. júl. ÍA - Keflavík

15. júl. FH - ÍA

26. júl. ÍA – HK

09. ágú. Fram – ÍA

16. ágú. ÍA – Fylkir

26. ágú. KR – ÍA

02. Sep. ÍA – Breiðablik

16. sep. Valur – ÍA

23. sep. ÍA – Víkingur

29. sep. Keflavík - ÍA

 

 

Kv. Hannibal


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 13:07:46 / hannibal

Hrindgu núna...

Og leggðu okkur lið:

Sími 9020005

Kv. Hannibal, í hjálparstöfum


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 10:38:49 / hannibal

Sjáðu...

http://hannibal.blog.is

Það er einhvern vegin svona sem maður hefur ballanzinn á þessu.

Kv. Hannibal, alltaf í blogginu 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 22:32:00 / hannibal

...

... FRÍ ...

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 21:39:21 / hannibal

Hvar er ég...?

Þú ert á gömlum stað... komdu á stærstu skandinavísku síðuna sunnan skandinavíu...:


setjan.com

Þarna er hvorki rok né rigning...  Ég veit þú þorir ekki að koma?

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 09:41:52 / hannibal

Þú þorir ekki að setjann púnktur kom...

Já þetta er það heitasta í dag og allir eru að tala um þetta:

http://thu.thorir.ekki.ad.setjan.com



p.s. sendu okkur mms á mms@setjan.com

Það er svo gaman að vera til... og það er verslunarmannahelgi, þá sjaldan

Land dagsins... íMMsLand

Kv. Hannibal, myndalegur

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 16:38:33 / hannibal

http://setjan.com/zi/

http://setjan.com/zi

 
 


ÞAÐ ERU ALLIR AÐ TALA UM ÞETTA

ÞARNA ÚT Í HEIMI...

 



Land dagsins... Zíland

Kv. Hannibal; Baza bida bing bazíba daz Zí Zíng... þetta er eitthvað alveg nýtt!


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 22:48:55 / hannibal

Þeir ætla ekki að leifa mér að flytja svo glatt...

... enda ekki skrítið...

Alla vega þá er þetta slóðin á nýju síðunni hjá okkur í ZÍ

á að virka að ýta HÉR enn annars er slóðin hér að neðan

Land dagsins... http://thecrib.asp.is/zi/

Kv. Hannibal; haldið nauðugum á blog.central


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 11:49:26 / hannibal

FLUTTUR

.

...HINGAÐ...

Og hvað er þarna kann einhver að spyrja? Jú þarna er allt!

Bada bing bada búmm la bamba... frétt, sport, slúður, beibs, lagstúfar, spjallið, myndir, pólitík, pimholio og ég veit ekki hvað og hvað... já barasta allt

Land dagsins... Zíland

Kv. Hannibal; nýr og betri maður... tekur breytingum mjög illa enda gríðarlega rótfastur maður með á hreinu hvað hann vill og gerir allt strax!


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 10:28:03 / hannibal

ZÍ-er málið þessa dagana, eitthvað fyrir alla

ÞETTA er heitasta síðan í dag og verður bara heitari og heitar...

Land dagsins... Ísland

Kv. Hannibal; á vit ævintýranna

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 22:38:14 / hannibal

Ætti að setja tvær mínútur á hann

Asnalegt að segja það en þessi maður vann leikinn í kvöld einn... veit að það er hægt að koma með einhverjar röksemdir fyrir því að einhver sé að vinna skíta vinnu á miðjunni fyrir hann en ég fer ekkert ofan af því, hann vann leikinn einn, átti þennan leik allan tímann... Lang besti knattspyrnu maður í heimi í dag!

Gaman að vera Barcelona maður í kvöld!!! Langt síðan það gerðist síðast á Evrópukvöldvökunni, en þetta bætir það upp!

MAÐUR KVÖLDSINS...


Land dagsins... Spánn

Kv. Hannibal; biður að heylsa frá Katalóníu

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 14:36:47 / hannibal

ZÍ- bregst við KóðaKjaftæðinu...



Búinn að fá upp í kok af þessu blogcentral dæmi, það á ekki að vera kvöð á því að skrifa komment, dógu erfitt að skrifa það fyrir svo maður þurfi ekki eitthvað að staðfesta það...

Að vanda hefur ZÍ brugðist við þessu veseni og er stefnt að opnunarpartýi á Zí-blog á laugardaginn og ætti hinn almenni bloggari að geta fengið sína síðu þar fyrir lok mánaðarins...

Land dagsins... ZÍ-landi

Kv. Hannibal; stoltur af sínum Svan...



» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 10:34:19 / hannibal

9.000 evrur í sekt... hlæ af því

Hvað er málið...?  Hvers vegna í ósköpanum, árið 2006, eru ennþá þessir fordómar í gangi?  Við erum að tala um það að í leik Real Zaragoza og Barcelona varð Samuel Eto'o enn og aftur fyrir aðkasti áhangenda, bara vegna þess að hann er svartur!

Eitt er víst að þessir hvítflippar þarna hjá FIFA og UEFA eru ekkert að fara að taka á þessu og virðist vera alveg sama.  Þeir sektuði Zaragoza um 9.000 evrur sem er tæpur 720.000 kall en þetta er alla vega þriðja atvikið á þessum velli, og fyrir fyrsta skiptilð voru þeir sektaðir um 600 evrur,  sem er ekki einu sinni 50.000 kall!

Þetta eru náttúrulega aðgerðir sem hafa engin áhrif á þessa áhorfendur sem eru svona miklir hálfvitar að dæma fólk eftir kynþætti.  Það þarf miklu róttækari aðgerðir.  Mér finnst persónulega að ef svona lagað gerist eigi knattspyrnumennirnir hreinlega að ganga af velli, og bara leik lokið síðar án áhorfenda. Þetta þarf að koma niður á öllum áhorfendum svo þeir fari að gera eitthvað í þessu.  Þeir þurfa að tapa peningnu og finna fyrir þessu persónulega, ekki bara klúbburinn.  Auðvitað á að sekta hann líka, miklu meira en nú er gert þannig að þetta lið sem hagar sér svona verði fundið og jafn vel sótt til saka.

Mér finnst þetta alveg óþolandi ástand.  Fólk má alveg hata einhvern en það er algjört rugl að byggja þann hatur á útliti eða litarhætti og setja alla þannig undir sama hatt.

Land dagsins... Kamerún

Kv. Hannibal;þolir ekkert bull

Myndir frá atvikinu:






» 4 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 00:47:44 / hannibal

Ísland á HM 2010?

Nei er ekki að sjá það... verð hissa ef T n't ná stigi á HM 2006! segi ég og skrifa...

Þetta var leiðinlegur leikur… get ekki annað sagt!  Sáum markmenn okkar aldrei í mynd nema til að taka boltan úr netinu.  Sáum okkar menn hlaupa svolítið á eftir T n’t-unum en sáum þá aldrei nýta sér mígleka vörn þeirra.  Sáum sóknamann þeirra reyna að slá í boltann og hann fékk víti.  Sáum að Yorke-inn er ekki dauður úr öllum æðum og smá baráttu á köflum.  Leiðinlegt annars og rosalega mikill skiptir engu helvítis máli leikur, vona að Sýn Sport Club (hversu hallætislegt getur eitt nafn verið) hafi ekki borgað margar krónur fyrir þetta hallærislega kvöld.  Gruna að leikmenn séu drullu fegnir að þessum leik sé lokið eftir það hvernig hann þróaðist...  Ætla samt að skella á þetta einkunum frá 1 upp í 10 ( - þýðir hafði ekki áhrif á leikinn) :

Gæði leiksins:  3

Dómarinn:  2

Aðstæður og umgjörð:  7

Leikmenn Íslands:

Árni Gautur Arason:  -

Helgi Valur Daníelsson:  3

Hermann Hreiðarsson:  4

Ívar Ingimarsson:  3

Indriði Sigurðsson:  3

Grétar Rafn Steinsson:  5

Jóhannes Karl Guðjónsson:  6

Stefán Gíslason:  4

Emil Hallfreðsson:  6

Eiður Smári Guðjohnsen:  5

Heiðar Helguson:  4

 

Daði Lárusson:  -

 

Brynjar Björn Gunnarsson:  5

Gylfi Einarsson:  5

Kristján Sigurðsson:  -

Hannes Sigurðsson:  -

Arnar Þór Viðarsson:  5

Land dagsins... Ísland

Kv. Hannibal; ekki síður ósáttur við u-21árs leikinn, samt veit ég bara það eitt að hann fór 4-0... hvað er í gangi í íslenska boltanum?

P.s. tek það fram að ég varð aldrei neitt nema áhugamaður

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10